DJ Atli Már · Brúðkaup & viðburðir

TÓNLIST SEMKVEIKIRSTEMNINGUNA.

Persónulegt tónlistarval, vandaður undirbúningur og næmt eyra fyrir salnum. Fyrir brúðkaup, fyrirtækjaviðburði og kvöld sem fólk man eftir.

Þið sjáið um ástina – ég sé um tónlistina.

DJ Atli Már við plötusnúðaborðið
WEDDINGSBrúðkaup
EVENTSFyrirtækjaviðburðir
PARTIESEinkaveislur
3 LÖNDÍsland · Spánn · Portúgal
01 / UM MIG

Meira en bara tónlist á dansgólfinu.

Ég er DJ Atli Már og hef sérstakt dálæti á brúðkaupum. Mér finnst skemmtilegast að kynnast hugmyndum brúðhjónanna, velja tónlist sem passar þeim og skapa kvöld þar sem ólíkar kynslóðir skemmta sér saman.

Ég vinn náið með veislustjórum þegar þjónustan nær yfir dagskrána, aðstoða við tímasetningar og tónlistaratriði og hugsa um smáatriðin. Þannig fá brúðhjónin meiri tíma til að njóta dagsins í stað þess að hafa áhyggjur af því hvað kemur næst.

Af hverju að velja mig?

✓Tónlist sem tengir saman kynslóðir
✓Samráð við brúðhjón og veislustjóra
✓Vandaður undirbúningur og gott flæði
✓Hljóð- og ljósalausnir eftir umfangi
02 / VIÐBURÐIR

Rétta stemningin fyrir hvert tilefni.

Engin tvö brúðkaup eru eins. Tónlistin og þjónustan taka mið af ykkur, dagskránni og fólkinu á staðnum.

01

Brúðkaup

Frá sérvöldum lögum og fyrsta dansi að dansgólfi þar sem allar kynslóðir fá að njóta sín.

02

Fyrirtækjaviðburðir

Vönduð tónlist og góð stemning fyrir starfsfólk og gesti.

03

Einkaveislur

Afmæli og sérstök tilefni sem eiga skilið góðan takt.

BRÚÐKAUPSÞJÓNUSTA

Tvær leiðir að réttu stemningunni.

PARTÍPAKKINN

Þið sjáið um veisluna, ég sé um partíið.

Fyrir brúðhjón sem vilja DJ þegar formlegri dagskrá lýkur og dansgólfið opnar. Hentar vel þegar hljóð- og ljósabúnaður er þegar til staðar.

LÚXUSPAKKINN

Frá fyrsta fordrykk til síðasta dans.

Heildstæð þjónusta með tónlist yfir veisluna, hljóðkerfi, míkrófónum og lýsingu, uppsetningu og samráði við veislustjóra. Þið njótið augnabliksins.

Ljós sem falla að litaþema veislunnar og persónuleg brúðkaupslógó eru meðal hugmynda sem má ræða sérstaklega. Sendið fyrirspurn og ég útskýri möguleikana.

03 / UMSAGNIR

Það sem gestir segja.

★★★★★
“DJ Atli Már fær okkar allra bestu meðmæli.”
— Brynja Djögg
★★★★★
“Fagnaður fram í fingurgóma, tónlist fyrir alla og hélt uppi stuðinu allt kvöldið.”
— Marta Rut
★★★★★
“I would highly recommend Atli for any event!”
— Alicia
04 / HAFA SAMBAND

Segðu mér frá stóra deginum.

Hvenær, hvar og hvernig stemningu hafið þið í huga? Ég fer sjálfur yfir fyrirspurnina og við ræðum hvaða þjónusta hentar best.

Engin skuldbinding. Fyrirspurnir berast á herra.atli@gmail.com í gegnum FormSubmit eftir staðfestingu á netfanginu.